157. löggjafarþing — 88. fundur, 24. mars 2026.
mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Flokks fólksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, þannig að Ásthildur Lóa Þórsdóttir taki sæti sem varamaður í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins í stað Ragnars Þórs Ingólfssonar. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.