Störf þingsins.
Frú forseti. Hér í þingsal í gær var nokkuð mikill hasar þegar óskað var eftir heimild til að lengja þingfund inn í kvöldið svo mikilvægt mál um lagareldi gæti örugglega klárað 1. umræðu og komist til nefndar. Hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar settu sig upp á móti því og sögðu dauðhneykslaðir að með þessu væri verið að vanvirða bændur enda voru stjórnmálaflokkar með móttöku fyrir bændur vegna setningar búnaðarþings í gærkvöldi. Þetta var náttúrlega hið mesta upphlaup enda öllum ljóst að eðlileg og góð 1. umræða um lagareldisfrumvarp hæstv. atvinnuvegaráðherra þurfti aldrei að taka lengri tíma en raunin varð en umræðunni lauk hér um kl. 19:45. Í kjölfarið hélt ég á fund bænda. Við í þingflokki Samfylkingar fengum öflugan hóp til okkar í vel lukkaða móttöku sem stóð fram eftir kvöldi. Það er alltaf gaman að ræða við bændur og heyrði ég margvísleg sjónarmið um byggðaþróun, búvörulög og svo auðvitað mögulegar áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Bændasamtökin hafa lýst því yfir að þau séu ekki mótfallin fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu en hafa sagt skýrt að ef aðildarviðræður hefjast á ný þurfi fulltrúi bænda að eiga þátt í því samtali. Því er ég sammála og vona að bændaforystan nálgist Evrópusambandsmálin með opnum huga í þeirri umræðu sem fram undan er.
Frú forseti. Ég þakka bændum fyrir gott samtal í gær og óska þeim árangursríks búnaðarþings.