157. löggjafarþing — 88. fundur,  24. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ekki laust við að kaldur hrollur hafi hríslast um mig þegar það bárust fréttir af flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fram fór um helgina þar sem sýnt var á spilin um hvernig samfélag flokkurinn vill byggja upp. Flokkurinn vill lækka skatta upp á 140 milljarða, 140 milljarða skattalækkun sem kemur sér best fyrir breiðustu bökin í samfélaginu, 35% flatt skattþrep á alla. Það þýðir að skattar á þá sem borga í efsta þrepi lækka talsvert á meðan skattar á flesta aðra hækka myndarlega. Það á að opna aftur á skattaglufur sem nýtast nær einvörðungu tekjuhæstu hópum samfélagsins. Flokkurinn vill lækka fjármagnstekjuskatt niður í 20% og hækka frítekjumark. Lækkun fjármagnstekjuskatts fer að mestu til þeirra 10% sem eru ríkust. Afnema vill flokkurinn erfðafjárskatt sem býr til erfðabundið forréttindakerfi, skatt sem er lagður á eignir þegar þær eru færðar til á milli kynslóða, ekki á vinnu fólks eða hugvit. Hann leggst á útgreiddan arð af eignum látinna. Þar af leiðandi leggst hann þyngst á eignamestu fjölskyldur landsins. Þessar 140 milljarða skattalækkanir eru 9% af útgjöldum ríkissjóðs á þessu ári.

Hvernig á að fjármagna þessa veislu ríka fólksins? Skera niður í heilbrigðisþjónustunni, minnka framlög til mennta- og menningarmála, láta innviði landsins grotna niður? Nei, það á að selja eignir m.a. og jú, það á að gera hitt líka. Ég spyr: Á að selja Landsvirkjun? Á að selja Landsbankann? Á að selja Isavia eða Landsnet eða á bara að selja allar mjólkurkýr ríkisins? En það er ekki nóg. Það á líka að skerða tekjustofna ríkisins. Flokkurinn vill hætta að taka gjöld af umferð til að standa undir rekstri vegakerfisins. Það á að lækka krónutölugjöld, afnema kolefnisgjöld, hætta að innheimta stimpilgjöld og svo mætti lengi telja. Á hvaða leið er Sjálfstæðisflokkurinn? Vill flokkurinn láta taka sig alvarlega? (Forseti hringir.)

Gæfa íslensks samfélags er að okkur hefur tekist að byggja upp sterkt velferðarkerfi samhliða efnahagslegum vexti. Við stöndum saman og berum ábyrgð hvert á öðru. (Forseti hringir.) Það er leiðarljós okkar í Samfylkingunni.