157. löggjafarþing — 88. fundur,  24. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Mig langar að gera að umtalsefni frétt sem birtist á mbl.is í morgun. Ef rétt reynist sem fram kemur í þeirri frétt er kannski ekki nema von að spurt sé: Hver treystir þjóðinni? Og eðlilegt að spyrja: Eru ekki áhyggjur Miðflokksins eðlilegar? Eru áhyggjur herra Ólafs Ragnars Grímssonar eðlilegar? Það kemur nefnilega fram í fréttinni, með leyfi frú forseta:

„Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra metur það svo að í hugsanlegum aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið (ESB) sé líklegra að sambandið tæki upp íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið en að Íslendingar þyrftu að aðlaga sig sjávarútvegsstefnu ESB.

Sömuleiðis telur hún að með aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi „fiskveiðikommisarinn“, sá meðlimur framkvæmdastjórnar ESB sem fer með sjávarútvegsmál, koma í hlut Íslendinga.

Þetta kom fram í máli hennar á fundi með forvígismönnum íslenskra millilandaviðskiptaráða sem haldinn var í utanríkisráðuneytinu síðdegis á mánudag í liðinni viku.

Að sögn þriggja fundargesta, sem staðfestu þetta við Morgunblaðið, kom ekki fram á hverju ráðherra byggði þetta mat sitt, en áður hefur komið fram í máli Þorgerðar Katrínar“ — hæstv. utanríkisráðherra — „að hún hafi átt í ýmsum viðræðum við ráðamenn ESB í Brussel, bæði með formlegum og óformlegum hætti.

„Ef við förum þarna inn verða Norðmenn ekki sérstaklega ánægðir, því þá myndum við fá fiskveiðikommisarinn og þeir myndu þurfa að eiga við okkur,“ hafði einn fundarmanna eftir ráðherra en tók fram“ — tók fram, frú forseti — „að það væri eftir minni […]

Aðrir viðmælendur blaðsins samsinntu því og bar saman um að það hefði ekki verið í gamni mælt, hún teldi sig ljóslega hafa komist töluvert áleiðis varðandi aðildarviðræður við ESB.“

Ég spyr, frú forseti: Í hvers umboði? Því að hér hefur engin atkvæðagreiðsla farið fram, hvorki hjá þingi eða þjóð. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að þegar vitnað er beint í ummæli fólks þarf að biðja um leyfi forseta.)