157. löggjafarþing — 88. fundur,  24. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ísland er öruggt en gæti verið enn öruggara, segir hæstv. dómsmálaráðherra í fjölmiðlaviðtali í dag. Engu að síður virðist hæstv. ríkisstjórn ætla að gera það óöruggara með nýju frumvarpi um vegabréfsáritanir sem rætt verður hér síðar í dag. Við höfum tekið viljann fyrir verkið hjá hæstv. dómsmálaráðherra að vilja taka á landamærunum, þótt ég haldi að okkar stuðningur í þeim smávægilegu málum sem hafa þó farið í gegnum þingið hingað til hafi skipt ráðherrann máli og það er bara ágætt samstarf. Öflugast væri hins vegar á þessu stigi fyrir hæstv. dómsmálaráðherra að reyna að koma viti fyrir utanríkisráðherrann sem er með undarlegt frumvarp núna hérna inni í þinginu þar sem verið er að færa framkvæmd vegabréfsáritana inn á Schengen-svæðið, frá dómsmálaráðuneyti til utanríkisráðuneytis, í því skyni að fjölga megi áritunum og afla ríkissjóði, þ.e. utanríkisráðuneytinu, meiri tekna.

Þetta efni frumvarpsins fer gegn verkaskiptingu ráðherra samkvæmt forsetaúrskurði. Dómsmálaráðherra á að fara með stjórn landamæra, Schengen-mál og málefni útlendinga. Þannig hefur það verið frá upphafi en núna er verið að rjúfa þetta jafnvel þótt dómsmálaráðuneytið bendi á að vegabréfsáritanir séu órjúfanlegur hluti af málefnum útlendinga og landamæra. Þetta er breyting sem enginn botnar í raun og veru í. Hún getur komið þegar viðkvæmri Schengen-landamærastjórn í ákveðið uppnám og getur aukið líkur á misnotkun í kerfinu til þess eins að utanríkisráðuneytið, að því er virðist, geti grætt nokkrar milljónir aukalega á ári með því að selja fleiri vegabréfsáritanir til fólks frá Afríku og Asíu. Ríkislögreglustjóri varar við þessu þótt ekkert samráð sé haft við hann. Sérfræðingar á sviði Schengen vara við þessu, hæstv. fyrrverandi dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason. Útlendingastofnun varar við þessu. Dómsmálaráðuneytið reynir kurteislega að vara við þessu án þess þó að taka fast til orða. Allsherjarnefnd, þar sem ég sit nú, er látin hvítþvo þetta með minnisblaði án þess að nokkur umræða fari fram í nefndinni um efni málsins og enginn áhugi er fyrir því að raunverulega fjalla um málið heldur bara að koma því í gegn. Þannig að hér erum við með hæstv. dómsmálaráðherra, sem kveðst ætla að taka stjórn á landamærunum, og hæstv. utanríkisráðherra sem vinnur í hina áttina. Maður veltir þessu fyrir sér og er sannarlega hugsi.