Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nú fer í hönd kosningabarátta fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Mér sýnist nú flest sveitarfélög vera að gera sig tilbúin í það og þingið fer í frí í tvær vikur fyrir kosningarnar sjálfar til þess að gefa frambjóðendum til sveitarstjórna svigrúm til að lýsa sínum skoðunum á málefnum og setja fram sína stefnu, og það er auðvitað sjálfsagt. Hins vegar vil ég nefna eitt mál sem varðar þingið nokkuð mikið. Þó að sjálfsstjórn sveitarfélaganna sé kannski alfa og ómega í okkar stjórnsýslu þá er eitt mál sem ég vil vekja athygli á sérstaklega sem þingmaður Reykvíkinga og ég tel að Reykvíkingar ættu að glöggva sig verulega á. Það er þessi umræða um borgarlínu sem hefur nú verið frek til fjörsins undanfarin ár, undanfarinn áratug, og óljósar hugmyndir flestra einhvern veginn í þeim efnum, þeirra sem tala fyrir borgarlínu og lýsa henni sem allsherjarlausn á umferðarvanda og samgöngum hér í Reykjavík sem hún er auðvitað ekki. Nú hins vegar virðast mér margir þeirra sem hafa ýtt þessu verkefni úr vör með ýmsum hætti vera svolítið á hlaupum undan málinu. Eitt hins vegar skiptir mjög miklu máli í þessu og það er að hugmyndir um borgarlínu ganga út á það og forsenda fyrir þeim hugmyndum er stórfelld gjaldtaka, skattheimta af Reykjavíkurbúum í formi gjaldtöku og innheimtu veggjalda hér í Reykjavík. Þetta er mál sem yrði ekki að veruleika nema með samþykki þingsins. Þess vegna hvet ég Reykvíkinga til að kalla eftir afstöðu, (Forseti hringir.) ekki bara frambjóðenda til borgarstjórnar heldur líka þingmanna til þessa tiltekna máls. Ég fyrir mitt leyti leggst að sjálfsögðu gegn slíkum veggjöldum.