Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Tillögur stjórnarandstöðunnar um að hætta við skatta- og gjaldahækkanir hins opinbera eða að hagræða í ríkisrekstrinum hafa ekki fengið neinn hljómgrunn svo vægt sé til orða tekið og óveðursskýin í efnahagslífinu hrannast upp. Ástandið hefur forsætisráðherra kallað bakslag en raunverulega bakslagið er líklega sá trúnaðarbrestur sem orðinn er á milli stjórnvalda og þjóðarinnar þegar forystumenn ríkisstjórnarinnar segja hreinlega eitt við fólkið í landinu en gera svo eitthvað allt annað. En í stað þess að tala um bakslag þarf að leita allra leiða til að kveða niður verðbólgu, t.d. með tímabundnum skattalækkunum þar sem annað virðist fullreynt gagnvart núverandi ríkisstjórn. Hvernig væri t.d. að skoða tímabundna lækkun á eldsneytisgjöldum eða matarskatti? Olíugjald var fellt niður um áramótin en kolefnisgjöld voru hækkuð á móti og kílómetragjöld tekin upp. Að mínu mati verður að skoða það að lækka eða afnema t.d. kolefnisgjöldin. Nú geisar stríð í Persaflóa sem veldur óvissu á eldsneytismarkaði ofan á allt annað. Eigum við ekki að bregðast við þótt ekki væri nema á meðan sú óvissa ríkir? Getur einhver verið á móti því? Að lækka virðisaukaskatt á matvæli myndi hafa jákvæð áhrif á þróun verðbólgu, jafnvel þótt um tímabundna ráðstöfun væri að ræða. Það hefur áður sýnt sig hér á landi að myndi koma heimilunum vel. Í Svíþjóð var nýlega ákveðið að lækka virðisaukaskatt á matvöru tímabundið, eða í tæp tvö ár, einmitt í því skyni að bregðast við verðbólgu. Við verðum að hefjast handa. Það gengur ekki að yppta öxlum og tala bara um aðgerðir.