Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Starfið í utanríkismálanefnd á þessu kjörtímabili hefur litast af vaxandi óánægju stjórnarandstöðunnar með samráðs- og virðingarleysi fyrir mikilvægu og lögbundnu hlutverki nefndarinnar. Ítrekað hafa komið upp stór utanríkismál sem er ýmist ekki haft samráð við um nefndina eða í algerri mýflugumynd. Minnisblað frá ráðuneyti nokkrum klukkustundum fyrir opinbera umfjöllun fjölmiðla verður t.d. seint skilgreint sem samráð. Á forsíðu Morgunblaðsins í dag er fjallað um meint ummæli hæstv. utanríkisráðherra um embætti sem kunni að koma í hlut Íslands við inngöngu í ESB. Ummælin eru höfð eftir þremur fundargestum á fundi hæstv. ráðherra með íslensku millilandaviðskiptaráðunum. Mér sýnist ummælin hvorki hafa verið staðfest né hrakin af hæstv. ráðherra sem hefur þó gefið út sérstaka yfirlýsingu vegna þessa, en hæstv. ráðherra kemur einmitt á fund utanríkismálanefndar í morgun. Nefndarmenn í utanríkismálanefnd hafa ítrekað óskað eftir upplýsingum um bæði formlega og óformlega fundi íslenskra ráðamanna með fulltrúum ESB. Við þurfum að fá að vita nákvæmlega hvaða samtöl hafa verið í gangi og um hvað.
Umræðan um embættin í ESB gefur síðan tilefni til að minna á frumvarp sem ég hef lagt fram með fleiri Sjálfstæðismönnum um að við herðum reglur varðandi hagsmunaárekstra æðstu ráðamanna sem sinna hagsmunagæslu fyrir hönd okkar í samningaviðræðum við erlend ríki. Margar nágranna- og vinaþjóðir hafa enda strangari lagaramma um þetta en við. Það er gríðarlega mikilvægt að embættisfærslur í tengslum við viðræður við erlenda aðila séu hafnar yfir allan vafa og með þessu myndum við auka traust, hlutleysi og greinarmun á eigin hagsmunum og hagsmunum þjóðarinnar.