vegabréfsáritanir.
Virðulegur forseti. Við ræðum áfram þetta frumvarp hæstv. utanríkisráðherra en sú sem hér stendur lagði fram nefndarálit í málinu ásamt öðrum í stjórnarandstöðu hv. utanríkismálanefndar. Í framsögu minni fyrir álitinu fór ég yfir ýmis álitaefni enda hefur frumvarpið tekið gjörbreytingum í meðförum meiri hluta nefndarinnar. Það getur auðvitað verið vel og ég hrósaði þeim nú fyrir þessar breytingar í fyrstu ræðu minni og maður sér alveg að þarna er verið að reyna að koma til móts við harða gagnrýni á efni þessa frumvarps. Samt birtist þarna líka djúpstæður ágreiningur á milli annars vegar dómsmálaráðuneytis og hæstv. ráðherra sem hefur auðvitað lagt gríðarlega mikla áherslu á herta landamæravörslu, og hins vegar utanríkisráðuneytisins. Þrátt fyrir þessar breytingar, og reyndar sumpart vegna þessara breytinga, leggjum við til í þessu áliti að málinu verði vísað til ríkisstjórnar. Það er gert í ljósi öryggishagsmuna sem eru undir í málinu og varnaðarorða og athugasemda sem birtast í umsögnum við málið og í máli gesta sem komu fyrir nefndina.
Mig langar að taka undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur sem er reynslumikill þingmaður. Annars vegar varðandi það að umsagnir sem bárust í þessu máli og gestakomur beindust sumpart að máli mjög ólíku því sem er hér til umfjöllunar í dag, þ.e. að teknu tilliti til breytingartillagna meiri hluta nefndarinnar, og hins vegar varðandi nauðsyn þess að við reynum að ná samstöðu hér í þinginu og ekki síst í þessum málaflokki.
Mig langaði að fara aðeins yfir það, og ég hef aðeins rakið þetta í ræðustól áður, að mín eigin reynsla af störfum í utanríkismálanefnd er gjörólík ef ég ber saman þetta kjörtímabil og fyrri kjörtímabil þar sem ég hef starfað annaðhvort í eða með utanríkismálanefnd. Það er hreinlega mjög lítil áhersla lögð á samstöðu í þessari nefnd, sem er mjög miður, og ég get nefnt þetta mál og ég get nefnt mörg önnur mál. Það er lítil tilraun gerð til að reyna að ná saman um nokkur mál í þinginu, a.m.k. hvað varðar þá nefnd sem ég sit í, utanríkismálanefnd. Mig langar að nefna sérstaklega í þessu tilliti það sem hefur svo oft verið rætt í þingsal og hefði betur mátt afgreiða með þremur umsagnarbeiðnum, sem eru umsagnarbeiðnir sem bárust frá nefndarmanni eftir að hann varð hugsi eftir gestakomur og fjölmargar umsagnir út af sérþekkingu viðkomandi aðila. Það að ekki hafi verið hægt að verða við óskum um þessar umsagnir og við séum búin að ræða það æ síðan sýnir auðvitað ótrúlegt viðhorf og er ekki til marks um að það sé verið að reyna að ná einhverri samstöðu eða samkomulagi í nefnd.
Mig langaði í þessari ræðu að velta örstutt upp öðru álitamáli sem ég held að hafi ekki komið til tals enn þá í þingsal varðandi þetta mál. Reyndar kom hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir inn á fjölgun stjórnsýslueininga, en það var einmitt markmiðið hjá okkur á síðasta kjörtímabili að fækka þeim í hagræðingarskyni. En það er varðandi þessa kærunefnd, sérstöku nýju kærunefnd sem er verið að koma á fót með breytingartillögu meiri hlutans í þessu máli. Í minnisblaði utanríkisráðuneytisins frá 24. febrúar síðastliðnum kemur fram að fjárhagsleg áhrif breytinga við stofnun og rekstur nýrrar úrskurðarnefndar áritunarmála hafi verið metin. Þar kemur fram að horft hafi verið til framkvæmdar við svipaðar úrskurðarnefndir, sem sagt við þetta kostnaðarmat, og að áætlaður kostnaður við nefndarstörf nýrrar kærunefndar sé metinn á um 2,5 milljónir. Ég set spurningarmerki við þetta kostnaðarmat og ætla aðeins að fara yfir það, bæði með tilliti til þess sem við fengum upplýsingar um í nefndinni en líka vegna þess sem ég þykist vita um þennan málaflokk.
Fjöldi kæra hjá kærunefnd útlendingamála er gríðarlegur og hefur aukist verulega síðan í fyrra. Mér virðist, ef ég skil breytingartillögu meiri hlutans rétt, að starfsmaðurinn sem eigi að þjónusta nefndina og í grundvallaratriðum undirbúa úrskurðinn að fullu muni vera starfsmaður utanríkisráðuneytisins, sem þá auðvitað tók ákvörðunina umræddu sem er verið að kæra í þessari nýju nefnd. Ég velti aðeins fyrir mér sjónarmiðum um réttaröryggi í þessu tilliti.
En varðandi kostnaðarmatið, virðulegi forseti: Er það raunhæft að einn nefndarfundur í mánuði dugi til að sinna þessu umfangsmikla verkefni sem hefur verið lýst hér, bæði í umræðum í þinginu en líka í vinnu nefndarinnar? Svarið er að þetta verkefni er mikið að umfangi. 70% af málum kærunefndarinnar skilst mér að séu kærumál vegna vegabréfsáritana, sem sagt kærunefndarinnar sem sér núna um þetta verkefni. Mér skilst að þrír embættismenn, nefndarmenn, séu í fullu starfi auk starfsliðs hjá kærunefnd útlendingamála. Málum þar hefur fjölgað úr 500 fyrir ári síðan í á annað þúsund mál. Það liggur fyrir að upphaflegt markmið hæstv. ráðherra með þessu máli, þó að sú lína hafi verið strokuð út af því að auðvitað leit þetta illa út með tilliti til öryggis landamæra, var að fjölga útgáfu vegabréfsáritana en ekki að neita fólki um vegabréfsáritun eins og einhverjir hv. þingmenn í stjórnarliðinu hafa reynt að halda hér fram. Þá má gera ráð fyrir því, ef það er verið að fjölga áritunum og gera gangskör að því í þessu máli, að kærum muni fjölga sömuleiðis. Mér virðist því sem útgjöld utanríkisráðuneytisins vegna þessa máls séu stórlega vanmetin og það er meðal þess sem við þurfum að taka til skoðunar milli umræðna í hv. utanríkismálanefnd, en ég óskaði eftir því hér í upphafi umræðunnar að málið færi þangað milli umræðna.
Nú hafa stjórnarliðar tekið undir í umræðum nauðsyn þess að við höfum góða starfshætti og reynum að ná samstöðu í utanríkismálanefnd og þá vonast ég til þess að vinnubrögðin verði betri í nefndinni á milli umræðna.