Störf þingsins.
Frú forseti. Það er mikið rætt og ritað um Evrópusambandið og þá staðreynd að mögulega þurfi þjóðin að greiða atkvæði um það hvort halda eigi áfram viðræðunum sem settar voru á ís á sínum tíma. Það er full ástæða til þess að halda utan um ákveðnar staðreyndir í málinu sem liggja fyrir. Það liggur fyrir að vextir og verðbólga eru almennt og alltaf hærri hér á Íslandi heldur en í nágrannalöndunum. Við verðum að spyrja okkur hvers vegna það er. Það kemur líka fram, til að mynda hjá seðlabankastjóra, sem er rétt, að Íslendingar vilji óverðtryggð lán. Hvað er verið að segja með þessu? Það er verið að segja að Íslendingar vilji ákveðinn fyrirsjáanleika þegar kemur að þeirra stærstu fjárfestingu sem oftar en ekki er húsnæði. Það er eiginlega orðið, fyrirsjáanleiki. Hvort sem lánin heita verðtryggð eða óverðtryggð þá er það það sem er þarna undir. Heimilin í landinu, fjölskyldurnar og fyrirtækin vilja meiri fyrirsjáanleika. Það var auðvitað þannig að stór hluti húsnæðislána var orðinn óverðtryggður hér á tímabili. Þá héldu menn jafnvel að hér væri runnið upp einhvers konar skeið þar sem óverðtryggð húsnæðislán yrðu normið í íslensku samfélagi. Það stóð yfir í fáeina mánuði. Svo fór allt í sama farið aftur; verðtryggðu lánin, af því að þá er fólk auðvitað að hugsa um sína greiðslubyrði og hugsa um afkomu fjölskyldunnar til skemmri og lengri tíma.
Þetta er veruleiki okkar Íslendinga og þetta er það sem við þurfum svolítið að hafa í huga þegar við erum að melta og vega og meta þessa spurningu sem hangir yfir okkur og hefur reyndar hangið yfir okkur alla lýðveldissöguna. Ef við göngum inn í Evrópusambandið þá verður hagstjórnin auðvitað áfram á forræði íslenskra stjórnvalda. Það eru íslensk stjórnvöld, ríkisstjórn á hverjum tíma, þingmeirihluti sem kemur hér í gegn fjárlögum og stýrir afkomu ríkissjóðs. (Forseti hringir.) Það verður auðvitað áfram samið um kaup og kjör hér úti á markaði. En höfum samt í huga (Forseti hringir.) að þegar talað er um að Íslendingar vilji óverðtryggð lán þá er í raun og veru bara verið að segja: Íslendingar vilja fyrirsjáanleika. (Forseti hringir.) Og þann fyrirsjáanleika hefur skort.
(Forseti (): Forseti biður þingmenn um að virða ræðutímann.)