Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í morgun hlustaði ég á mjög gott viðtal við forseta Íslands á Rás 2. Frú Halla Tómasdóttir var að venju með mjög góða hugvekju um líðan og heilbrigði samfélagsins, um mikilvægi þess að allar manneskjur finni fyrir tengslum við annað fólk og tilgangi í lífinu. Hún sagði réttilega að það væri ekkert öryggismál mikilvægara en að tryggja vellíðan unga fólksins okkar.
Ég er þessu hjartanlega sammála og því er ég virkilega sorgmædd að heyra um meðferð á börnum sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi. Það var sláandi innslag í fréttum á RÚV síðasta laugardagskvöld þar sem aðbúnaði barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd var lýst. Frá því var sagt að eftir yfirfærslu málaflokksins frá sveitarfélögum til Vinnumálastofnunar hafi börn hvorki haft aðgang að leikskólum, tómstundum eða frístundaheimilum. Bæði Barnaheill og umboðsmaður barna óttast um velferð barna í leit að alþjóðlegri vernd og benda réttilega á að það sé ekki hollt fyrir neitt barn að vera staðsett inni í íbúð allan daginn.
Til upprifjunar þá lögfestum við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 2013. Í einföldu máli má líta á barnasáttmálann sem reglubók þar sem fram kemur hvernig fullorðið fólk á að hugsa um börn svo að þeim líði vel. Reglurnar í barnasáttmálanum eru kallaðar mannréttindi. Mannréttindi segja til um það sem allir eiga að lágmarki að hafa og njóta í sínu lífi.
Virðulegi forseti. Við getum ekki tryggt velferð allra barna í þessum heimi, því miður, en við getum fjandakornið tryggt aðgengi allra barna og þá meina ég allra barna á Íslandi, hvort sem þau eru umsækjendur um alþjóðlega vernd eða fædd með silfurskeið í munni. Við getum tryggt þeim aðgang að leikskólum, tómstundum og frístundaheimilum. (Gripið fram í.)Á Íslandi eiga öll börn að hafa jöfn tækifæri, (Gripið fram í.)öll börn.
(Forseti (ÞSv): Ég vil biðja hv. þingmann að gefa ræðumanni hljóð og sýna virðingu þeim þingmanni sem er í ræðustól.)
Ég ætla að endurtaka það sem ég sagði: Á Íslandi eiga öll börn að hafa jöfn tækifæri, öll börn. Í fyrrnefndu viðtali við RÚV sagðist hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra taka þessari gagnrýni mjög alvarlega og að þessum málum yrði kippt í liðinn innan mjög skamms tíma. Það var gott að fá svo skýr svör frá ráðherra. Ég treysti þeim og mun fylgja málinu eftir.