Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Sjálfakandi bifreiðar eru framtíðin í samgöngum hér á landi eins og annars staðar líkt og ég fjallaði um í þessum ræðustól fyrir nokkrum mánuðum. Einkum benti ég þá á að taka þyrfti tillit til þess í endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, greina og taka tillit til áhrifa sjálfakandi bíla á umferðina á komandi árum, jafnt hvað fjölskyldubílinn varðar sem og almenningssamgöngur. Það er mögnuð reynsla að fara ferða sinna í sjálfakandi farartæki en þróun slíkra bifreiða er mjög hröð þessi misserin. Þeir eru orðnir algengir í sumum ríkjum Bandaríkjanna en tilraunir með sjálfakandi bifreiðar eru líka hafnar í nágrannalöndum okkar, Bretlandi, Þýskalandi, Noregi og víðar. Úttektir hafa leitt í ljós að sjálfakandi bílar hafa reynst öruggari í umferðinni en aðrir. Þessir bílar munu hafa mikil áhrif á ferðavenjur okkar allra. Fjölskyldur munu í auknum mæli komast af með einn bíl á heimili því fólk nýtir sama bílinn í skutl til og frá vinnu og tómstundum og hægt er að undirbúa vinnudaginn á leiðinni á vinnustaðinn og mun þessi tæknibylting því geta haft áhrif á búsetu fólks. Áhrifin verða margvísleg og það er styttra í að þessi tækni verði tekin í notkun hér á landi en margir gera sér grein fyrir í dag og nú hefur borgarstjórn Reykjavíkur samþykkt að taka þessi mál til skoðunar.
Löggjafinn þarf að vera tilbúinn að laga sig að þessum breytingum. Ég mun á næstu dögum leggja fram þingsályktunartillögu um að hafinn verði undirbúningur að breytingum á lagaumhverfi sem geri sjálfakandi bifreiðum kleift að aka hér um götur. Nú þegar eru margar bifreiðar hér á landi, frá Teslu einkum, sem búa yfir möguleikanum á sjálfstýringu. Verum tilbúin fyrir framtíðina.