157. löggjafarþing — 89. fundur,  25. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Morgunblaðið telur sig hafa heimildir fyrir því að hópur Hamas-liða hafi staðið fyrir hnífstunguárás á Höfðatorgi á dögunum. Fjölmiðlum ber ekki saman um þetta atriði og er það sérstakt rannsóknarefni. Mikilvægast er að lögreglan greini almenningi grímulaust frá slíkum atburðum. Eins og menn vita eru Hamas alræmd hryðjuverkasamtök með ótal hryðjuverk, morð og illvirki á samviskunni. Fram hefur komið hjá lögreglu að allir hinir handteknu í málinu hafi lítil tengsl við landið. Margítrekaðar viðvaranir ríkislögreglustjóra í skýrslum, sem ég hef vakið athygli á hér á Alþingi og efnt til umræðu um, hafa raungerst svo ekki verður um villst. Öllum má ljóst vera hvílík ógn stafar af slíkum hópum manna og hætta fyrir öryggi almennra borgara. Það er ástæðan fyrir því, frú forseti, að þær þjóðir, sem hafa verið að takast á við samtök á borð við Hamas og þekkja til, kemur ekki til hugar að taka við fólki frá ákveðnum svæðum nema að undangenginni ítarlegri bakgrunnsskoðun sem er einungis á færi fagmanna. Beita þarf tafarlausum brottvísunum þegar slíkir menn eiga hlut. Hér duga engin vettlingatök. Grunaða menn vegna árása af þessu tagi þarf að sækja til ábyrgðar og brottvísa síðan. Og þar dugir ekki að tala um neitt tímabundið endurkomubann. Engin endurkoma. Punktur. Og hvað með þá tugi manna sem voru aukaleikarar á vettvangi og gætu orðið aðalleikarar í næstu árás? Hefur þeim verið fylgt úr landi. Hér þarf aðgerðir, ekkert orðagjálfur eða athuganir eða skoða málin. Brottvísanir. Frumskylda stjórnvalda á hverjum tíma er að gæta öryggi borgara landsins. (Forseti hringir.) Landamærunum hefur verið stjórnað af auðtrúa og bláeygum stjórnvöldum. Slíkt dugir ekki þegar öryggi landsmanna er í húfi.