Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Búnaðarþing var sett síðastliðinn mánudag og fengum við þingmenn tækifæri á að vera við setninguna og hitta bændur í framhaldinu í góðu spjalli um hvað þeim er efst í huga og hvernig þeir sjá framtíðina fyrir sér. Nýliðun í greininni er bændum ofarlega í huga þar sem meðalaldur bændastéttarinnar er hár og mikilvægt er að styðja við kynslóðaskipti í greininni svo hún verði með bestum hætti. Ríkissjóður Íslands á yfir 400 jarðir, þar af fara Ríkiseignir með umsýslu á rúmlega 300 jörðum og eru ríflega 100 ábúðarsamningar í gildi vegna bújarða. Hvað verður um þessar jarðir þegar viðkomandi bændur hætta búskap sökum aldurs eða breyttra aðstæðna? Er möguleiki á að einhver afkomandi eða annar sé tilbúinn að taka við jörðinni eða verður jörðinni skilað til Ríkiseigna fyrir einhverjar greiðslur fyrir ræktun? Ríkiseignir gætu við þessar aðstæður auglýst eftir nýjum ábúendum fyrir viðkomandi jörð sem væri að fara úr ábúð, ábúandi tæki þá við jörðinni í fullum rekstri með vélum, bústofni og ræktun. Slíkt fyrirkomulag er tilvalið tækifæri fyrir unga bændur að grípa sem stuðlar að nýliðun innan bændastéttarinnar. Ríkiseignir gætu t.d. boðið bændum upp á hagstæð lán þegar þeir taka við ríkisjörðum í fullum rekstri til að geta keypt af fyrri ábúenda vélar og bústofn sem hann hefur fjárfest í og ræktað í gegnum árin.
Fréttir berast af því að Ríkiseignir geri kynslóðaskipti erfiðari á bújörðum með því að banna t.d. að byggja nýjar byggingar sem innihalda nútíma búskaparhætti nema með því skilyrði að ríkið þurfi ekki að kaupa nýbyggingar þegar búskap er hætt á jörðinni. Einnig að ef ríkisjörð er seld fylgi takmarkað landrými húsakostum. Ríkiseignir séu þannig að draga úr mögulegri nýliðun innan bændastéttarinnar. Mikilvægt er að ríkið sýni gott fordæmi og stuðli að kynslóðaskiptum í sveitum með auknum nýsköpunarstyrkjum og hagstæðum lánum til framkvæmda til nýsköpunar og nýliðunar. Það er ekki bara nauðsynlegt að tryggja matvælaöryggi og búsetu í sveitum landsins heldur eru bændur líka okkar góðu landverðir með sjálfbærri landnýtingu á náttúruauðlindum okkar. Fjárfesting í stuðningi við öflugan landbúnað til framtíðar er þjóðarhagur jafnt fyrir bændur sem neytendur.