lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Alla jafna myndi ég ekki leggjast gegn lengingu þingfundar í aðdraganda páskahlés en í ljósi þess að hér hefur dag eftir dag verið óskað eftir lengri þingfundi og þingfundir staðið til miðnættis þá sé ég hreinlega ekki ástæðu til þess, sérstaklega í ljósi dagskrár dagsins í dag, að greiða atkvæði með lengri þingfundi í dag. Það er orðinn einhver plagsiður að halda þingmönnum hér til miðnættis, jafnvel í umræðu um mikilvæg mál þar sem jafnvel er óskað eftir því að ráðherrar séu viðstaddir. Ég beini þeim tilmælum til virðulegs forseta í framhaldinu að endurskoða þessa nýju stefnu um kvöldfundi hér dag eftir dag. Burt séð frá því að ég hef fullan skilning á því að ráðherrar óski eftir því að mál þeirra gangi hratt í gegnum þingið, mál eftir mál, þá er þingið með dagskrárvaldið og þingmenn eiga heimtingu á því að starfsáætlun þingsins og skipulag haldi svona a.m.k. þorra þingvetrar.