aðgerðir vegna þróunar efnahagsmála.
Frú forseti. Þetta er nú að verða fastur liður hjá mér og hæstv. fjármálaráðherra að ég komi hér og lýsi áhyggjum af þróun efnahagsmálanna og hæstv. ráðherra komi og bregðist við með því að segja okkur að hann sé að fylgjast með og ætli að fara að hugleiða hvort ástæða sé til að grípa inn í, breyta eitthvað stefnunni eða grípa til aðgerða. Við höldum áfram því að nýjustu hagtölur gefa því miður tilefni til þess. Verðbólgan eykst nú enn og nýjustu atvinnuleysistölur frá Hagstofunni, 7,1% í febrúar, eru ekki góðar. Því hlýt ég að gera ráð fyrir að hæstv. fjármálaráðherra sé nú a.m.k. farinn að hugleiða að grípa til einhverra aðgerða til að bregðast við þessari þróun. Hún hefur verið í öfuga átt allt of lengi. Þær aðvaranir sem hv. þingmenn minni hlutans hér hafa reynt að koma á framfæri við hæstv. ráðherra, ekki hvað síst í umræðu um fjárlögin og bent á það hvernig þau væru til þess fallin, og aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, að ýta undir verðbólgu frekar en hitt, á þær var ekki hlustað. En ég velti fyrir mér hvort nú sé kominn sá tími að hæstv. fjármálaráðherra sé farinn að hafa áhyggjur og að því marki að hann ætli að bregðast við. Spurningin er þessi: Hvernig ætlar hæstv. fjármálaráðherra að bregðast við þessari þróun og hvenær ætlar hann að gera það?