aðgerðir vegna þróunar efnahagsmála.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir endurtekna spurningu og get glatt hann með því að á þau spil verður sýnt beinlínis í dag þegar fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður lögð fram. Það kom glögglega fram í máli seðlabankastjóra þegar hann kynnti ákvörðun peningastefnunefndar hverjar grunnástæður verðbólguþróunarinnar hafa verið. Það hafa verið hækkanir á launum umfram framleiðnivöxt sem skapar spennu í hagkerfinu og það er of mikil eftirspurn miðað við framleiðslugetu hagkerfisins. Viðbrögð Seðlabankans við slíkri aukinni spennu eru að hækka stýrivexti. Það sem ríkissjóður getur gert til að hjálpa á þeirri vegferð er að draga úr þensluhvetjandi aðgerðum ríkisins sem felast í því að langsamlega stærstu leyti og mikilvægast er að draga úr halla ríkissjóðs. Það er nákvæmlega það sem verður kynnt í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem lögð verður fram á eftir og ég þarf ekki að endurtaka, svo oft hefur það verið sagt, þar sem fram kemur að við stefnum að hallaleysi og svo afgangi í rekstri ríkissjóðs á komandi misserum.