aðgerðir vegna þróunar efnahagsmála.
Frú forseti. Þótt hæstv. fjármálaráðherra hafi frestað, væntanlega vegna veðurs, kynningu fjármálaáætlunar þá þarf hann ekkert að líta á þetta sem eitthvert leyndarmál. Ég held að hæstv. ráðherra geti alveg gefið okkur betur til kynna hvernig hann ætlar að bregðast við stöðunni núna. Ég er ekki fyrst og fremst að velta fyrir mér hvað hann sér fyrir sér að gerist 2029 eða 2030 heldur til hvaða aðgerða ríkisstjórnin muni grípa eins og staðan er nú. Hæstv. forsætisráðherra talaði um það á sínum tíma að þetta yrði kannski skoðað eftir páska. Síðan þá hefur þróunin haldið áfram til verri vegar og í millitíðinni er hæstv. forsætisráðherra svo sem hættur að spá í þetta og farinn að huga að Evrópusambandinu. Ég vona að hæstv. fjármálaráðherra sé ekki búinn að gefast upp á verkefninu algerlega og sé kominn í huganum til Brussel. Ég nota kannski tækifærið og spyr hæstv. ráðherra út í auglýsingu sem birtist frá opinberum starfsmönnum í Morgunblaðinu í morgun þar sem þeir mótmæla afnámi áminningarskyldunnar. Ég tel reyndar að þessi félög hefðu getað sparað sér þennan pening og þessi mótmæli (Forseti hringir.) því að ég held að það standi ekki til af hálfu ríkisstjórnarinnar að klára þetta mál. Ég held að það sé meira til sýnis. (Forseti hringir.) Getur hæstv. ráðherra upplýst okkur um afstöðu hans til þess?