157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

áhrif atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar.

[13:09]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Sumarfundur ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var haldinn í Stykkishólmi 14. og 15. ágúst sl. Ef marka má fréttir af vef Stjórnarráðsins var sá fundur afar gagnlegur. Ríkisstjórnin notaði tækifærið og fundaði með Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi ásamt sveitarfélögunum um þeirra helstu áherslumál og um sameiginleg verkefni ríkis og sveitarfélaga. Ríkisstjórnin fundaði einnig um atvinnustefnu og bauð fulltrúum fyrirtækja, sveitarstjórna og fleiri góðum gestum til óformlegs samtals, samtals sem undanfarna daga hefur gengið undir nafninu koss dauðans.

Virðulegur forseti. Á síðasta haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var einróma samþykkt ályktun þar sem skorað var á stjórnvöld að tryggja að breytingar á lögum um stjórn fiskveiða grafi ekki undan samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra útgerða og að línuívilnun og skel- og rækjubætur verði hvorki skertar né lagðar af. Nú liggur hins vegar fyrir frumvarp frá hæstv. innviðaráðherra sem gengur þvert gegn áðurnefndri ályktun sveitarfélaganna og kynningu þeirra fyrir ríkisstjórn í ágúst. Umræddar breytingar fela í sér grundvallarbreytingu á starfsumhverfi sjávarútvegsins í mörgum byggðum á Vesturlandi og Vestfjörðum og munu hafa mjög neikvæð áhrif á atvinnulíf, byggðafestu og tekjustofna sveitarfélaga. Áhrifin munu fyrst og fremst hitta fyrir litlar og meðalstórar útgerðir og fiskvinnslur og tengda þjónustu sem mynda burðarás atvinnulífs, t.d. í Stykkishólmi, Strandabyggð og Drangsnesi. Í nýlegri ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi er því alfarið hafnað sem fram kemur í frumvarpinu að áhrif á sveitarfélög séu óveruleg, en telja þvert á móti að afnám þessara ívilnana muni leiða til samdráttar í umsvifum, fækkunar starfa og lægri tekna sveitarfélaga, bæði beint í gegnum útsvar og hafnargjöld og óbeint í gegnum minni viðskipti og þjónustukaup innan sveitarfélaganna.

Virðulegur forseti. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé ekki sanngjörn og réttmæt krafa þessara samfélaga að þau fái að búa við stöðugleika og fyrirsjáanleika í starfsumhverfi sjávarútvegs sem þau byggja afkomu sína á eða vill hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) einfaldlega fórna þeim til að efna kosningaloforð Flokks fólksins um 48 daga á strandveiðum?