157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

áhrif atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar.

[13:11]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanni fyrir fyrirspurnina. Við erum að taka til í byggðakerfinu og 5,3% pottinum. Það kerfi hefur ekki skilað þeim árangri sem því var ætlað. Ég vil benda hv. þingmanni á að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2024. Hvað segir þar? Jú, þetta er algerlega staðnað kerfi, þetta er algerlega staðnað byggðakerfi. Ef hv. þingmaður ætlar að verja þessa stöðnun þá mun þetta kerfi hrynja endanlega með tíð og tíma, svo það liggi algerlega fyrir.

Varðandi rækju- og skelbætur þá voru þær upphaflega settar fyrir rúmum þremur áratugum sem tímabundin mótvægisaðgerð vegna aflabrests í rækju- og skelveiðum. Ég vil leggja áherslu á að hún átti að vera tímabundin. Það var ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem hætti við að trappa niður þetta mál. Það er mat ráðuneytisins og ýmissa starfshópa sem um málið hafa fjallað í gegnum tíðina að það eigi að leggja þetta niður. Í skýrslu frá 2017 sem unnin var á þeim tíma kom fram að byggðafestuáhrif af rækju- og skelbótum væru metin lægst innan 5,3% pottsins. Starfshópur um 5,3% kerfi frá 2020 sagði að þetta úrræði hafi fyrir löngu lokið hlutverki sínu. Það er sömuleiðis komist að svipaðri niðurstöðu og mælt fyrir afnámi þessara bóta í skýrslunni Auðlindin okkar frá 2023. Forsendur rækju- og skelbóta eru brostnar. Við getum ekki látið tímabundinn stuðning vegna löngu liðinna atburða liðinnar aldar breytast í varanlegan framfærslurétt sem rýrir hlut annarra í byggðakerfinu. Það er ekki hægt. Vissulega átti þetta upphaflega að vera í stóra kerfinu en það var fært af pólitískum ástæðum í 5,3% kerfið. Ef hv. þingmaður ætlar að verja þessa stöðnun sem er í þessu kerfi þá bara veskú. Ég ætla að gera mitt besta til að koma lífi í þetta 5,3% kerfi til að styrkja veikar byggðir landsins sem hafa farið illa út úr stóra kerfinu. Það er markmiðið.