157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

áhrif atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar.

[13:14]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og ætla að segja honum strax að hann hefur kolrangt fyrir sér. Þetta var ekki tímabundin mótvægisaðgerð. Skelbæturnar voru veittar til útgerða sem voru að láta frá sér þorsk og voru skertar meira heldur en að meðaltali var gert og þess vegna ættu að vera ríkari kröfur gagnvart rækju- og skelbótum. Ráðherra hefur endurtekið fjallað um það að hér séu skýrslur sem lýsa yfir frati á þetta kerfi. Ég get alveg verið sammála ráðherra með það en ráðherrann hefur aldrei bent á það að strandveiðar séu lausnin. Af hverju er ráðherrann svona fastur í því að strandveiðar séu eina lausnin í málinu? Hann er með önnur úrræði. Við erum tilbúin hér, þingmenn, alla vega í stjórnarandstöðu, til að taka á því, með þingmáli frá ráðherranum, og breyta þessu. En strandveiðar — hvar eru þær nefndar sem svar við þessu? Ég vil gjarnan að ráðherra komi fram með nákvæmlega þær upplýsingar.