aðgerðir til lækkunar verðbólgu.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurninguna. Eins og hv. þingmaður veit er ég alltaf til samtals um allar góðar uppbyggilegar hugmyndir og þrátt fyrir að við hv. þingmaður og aðrir kollegar hans úr Framsóknarflokknum höfum átt hér orðastað um sumar af þessum hugmyndum áður þá fagna ég mjög þeim sinnaskiptum sem felast í því að taka fram að þessar aðgerðir, sama hverjar þær eru, þurfa að viðhalda aðhaldsstigi ríkisfjármálanna, þ.e. að ef ráðast á í aðgerðir sem myndu hafa áhrif á t.d. verð ákveðinna vara þá þyrfti að fjármagna þær með einhverjum hætti. Þetta finnast mér vera ákaflega jákvæð og góð sinnaskipti. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt að við horfum til verðbólguhvetjandi og -letjandi aðgerða sem ríkið getur gripið til og sérstaklega með áherslu á þær verðbólguletjandi. Í orðaskiptum mínum við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson fór ég yfir hvaða aðgerðir verða kynntar hér síðar í dag varðandi ríkisfjármálin. Innan þess ramma sem þar hefur verið settur þá held ég að það sé full ástæða til þess að taka umræðu við hv. þingmenn, hvort sem þeir eru úr stjórn eða stjórnarandstöðu, um þær skynsamlegu aðgerðir sem hægt er að grípa til. En eins og ég segi, innan þess ramma.