aðgerðir til lækkunar verðbólgu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir fyrirtakssvör og ég fagna því að hæstv. ráðherra sé tilbúinn að koma og hlusta á þær hugmyndir sem við höfum fram að færa, hvort sem þær eru frá stjórnarandstöðunni eða Framsókn, vegna þess að ég held að það sé öllum orðið ljóst, alla vega er okkur orðið það ljóst, að það verður að grípa til einhverra aðgerða. Því fagna ég því sem kemur fram í máli hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að það séu fyrirhugaðar aðgerðir á borðinu, sem er reyndar í algjörri andstöðu við það sem hæstv. forsætisráðherra hefur haldið fram vikum saman um að planið sé að virka og það þurfi engar aðgerðir, sem ég er algjörlega ósammála.
Í mínu síðara andsvari langar mig samt að spyrja hæstv. ráðherra, af því að hann talaði hér um aðgerðir, og reyna að fá aðeins hans skoðun á þessari verðbólgusíuhugmynd. Einföld aðgerð í sjálfu sér (Forseti hringir.) en getur orðið mjög skilvirk, sé henni beitt vel.