157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

aðhald í ríkisfjármálum.

[13:23]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan boðaði hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra aukið aðhald í ríkisfjármálum. Við þau orð rann mér eðlilega kalt vatn milli skinns og hörunds, enda vitum við öll að með aðhaldi í ríkisfjármálum á ríkisstjórnin alla jafna við hið margrómaða nýyrði sitt, „aðhald á tekjuhlið“, sem heitir á mannamáli skattahækkanir. Það kom hins vegar skemmtilega á óvart að daginn eftir þessa yfirlýsingu sína útskýrði hæstv. ráðherra að hann sæi ekki fyrir sér neinar skattahækkanir heldur að aðhaldið yrði á útgjaldahliðinni. Batnandi manni er best að lifa, segi ég. Þá hafa bæði hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og hæstv. forsætisráðherra sagt að flatur niðurskurður sé ekki góð leið til að halda aftur af ríkisútgjöldum. Í tilefni þess að verðbólga hefur hækkað enn á ný vil ég spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort fyrri ummæli hans um engar væntanlegar skattahækkanir og flatan niðurskurð eigi enn við.