aðhald í ríkisfjármálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir spurninguna. Varðandi flatan niðurskurð hef ég tjáð mig í þessum sal um að slíkar óútfærðar aðhaldsaðgerðir hafi tilhneigingu til að bitna mjög harkalega á allri þróun og nýsköpun í rekstri hins opinbera og eru þess vegna ekki góð leið til þess að beita aðhaldi um lengri tímabil. Það er hins vegar þannig að það aukna aðhald sem verður að beita um þessar mundir, ef ríkið á að styðja við aðgerðir Seðlabankans, krefjast þess að við horfum vítt yfir völlinn. Það er hins vegar ekki þannig að þær hugmyndir sem verða kynntar í fjármálaáætlun séu óútfærðar. Þær eru einmitt útfærðar, þó að þær muni hafa áhrif víða. Síðan er það þannig að fjármálaáætlun gerir ráð fyrir, eins og raunar síðasta fjármálaáætlun gerði ráð fyrir, að heildarumfang skatttekna ríkisins fari lækkandi miðað við verga landsframleiðslu. Þannig að: Já, það verður haldið áfram á þeirri vegferð sem boðuð hefur verið og staðið hefur verið við.