aðhald í ríkisfjármálum.
Virðulegur forseti. Þetta var eins óskýrt og hægt var hjá hæstv. ráðherra, en allt í lagi. Nú ætlum við að venda kvæði okkar í kross. Árið 2021 skrifaði hæstv. fjármálaráðherra, ásamt fjórum öðrum, í ritið Regional Studies in Marine Science. Þar komast þeir fræðimenn sem þar skrifuðu grein að því, og ég vitna beint í, með leyfi forseta, að „strandveiðar eru þess vegna efnahagsleg sóun“.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra já- eða nei-spurningar. Er hæstv. ráðherra sammála því að færa störf, heilsársstörf, að leggja niður heilsársstörf og færa þau yfir í auknar strandveiðar? Þetta er í rauninni já- eða nei-spurning: Er hæstv. ráðherra sammála því að leggja niður heilsársstörf og færa þau yfir í sumarstrandveiðar eins og hæstv. innviðaráðherra leggur til?