157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

Stefna til næstu ára þegar kemur að hlutafélögum í eigu ríkisins.

[13:44]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir þessa umræðu um ohf. Það hefur verið áhugamál okkar margra, held ég, í þessum sal að fara svolítið á dýptina í þessari umræðu. Það er margt áhugavert við opinber hlutafélög og þá menningu sem skapaðist fyrir kannski um 20 árum síðan þegar þetta fór að færast mikið yfir í ohf.-in, færast raunverulega út úr hefðbundnum ríkisfjármálum og til sérfyrirtækja raunverulega utan efnahagsreiknings ríkissjóðs, svona í daglegu tali. Við þekkjum RÚV ohf. En sá sem hér stendur þekkir kannski best sögu Flugmálastjórnar Íslands. Frá 1. janúar 2007 var búið til ohf. um það félag og stjórnsýslan og þjónustuhlutverkið tekin í sitthvora áttina. Það var búið til fyrirtæki sem hét Flugstoðir ohf. um innanlandsflugið og Keflavíkurflugvöllur ohf. varð til um Keflavíkurflugvöll eftir að herinn fór 2006 og allt endaði þetta inn í Isavia ohf. Ríki í ríkinu. Þetta er mjög ótengt því sem hefðbundið er þegar við ræðum um fjármál ríkisins eða bara almennt skipan mála og hvernig eigi að stýra þessu landi á þessu málefnasviði. Það er mín skoðun að síðustu 20 ár hafi flugmál á Íslandi verið í lamasessi miðað við hvernig þau voru fyrir 1. janúar 2007. Í lamasessi. Það hefur orðið gríðarleg breyting og slæm breyting í málefnum flugsins. Það kemur líka fram, og það er mikilvægt hér, að í þessu máli rýnum við til gagns; við gagnrýnum þetta kerfi og tökumst raunverulega á við það hvaða áhrif það hefur haft á Íslandi. Undir Isavia ohf. er síðan til Innanlandsflugvellir ehf., einkahlutafélag undir ohf., þar sem er búið að fjarlægja pólitíkina, fjarlægja Alþingi mjög langt frá allri pólitískri stefnumótun í flugmálum á Íslandi. (Forseti hringir.) Þetta er allt of stuttur tími til að ræða þessi mál vegna þess að hér erum við búin að færa mikið af grunninnviðum, helstu þjóðaröryggisinnviðum landsins, undir ohf. og fjarlægja þá frá löggjafarþinginu.