157. löggjafarþing — 90. fundur,  26. mars 2026.

Stefna til næstu ára þegar kemur að hlutafélögum í eigu ríkisins.

[13:54]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu sem hér á sér stað. Tíminn er knappur þannig að ég ætla að byrja á því að rifja aðeins upp þá gagnrýni sem hefur komið fram hér á ohf.-væðinguna sem varð á sínum tíma og er núna þannig stödd að þau eru orðin 45 og enn bætist í ef mál ríkisstjórnarinnar um innviðafélag nær fram að ganga. Þetta verður einhvers lags lokaður kassi, svartur kassi; erfitt fyrir stjórnmálamenn að ná upplýsingum út úr félögunum og útilokað næstum því eftir þá mislukkuðu breytingu sem varð hér varðandi skipan stjórna, að slíta á samskipti við pólitíkina í þessum félögum. Ég vona að sú ákvörðun hæstv. fjármálaráðherra, fyrrverandi ekki núverandi, verði endurskoðuð sem fyrst því að það skiptir máli að við séum með beina tengingu við stjórnir þessara mikilvægu fyrirtækja. Við sjáum nú bara hversu mörg mál koma upp í umræðunni þar sem skilin þarna á milli verða til vandræða. Það eru þessi armslengdarsjónarmið. Ef ríkisstjórn hvers tíma á annað borð metur það sem svo að það sé skynsamlegt að ríkið eigi tiltekið fyrirtæki að fullu eða hluta þá hef ég aldrei skilið hvernig sú hugsun gengur upp enda ef menn síðan á sama tíma segja: Ja, við viljum ekki hafa nein áhrif með þessu. Við viljum ekki einu sinni að stjórnmálin geti snert þetta með neinum hætti. Við ætlum að vera svo fagleg í skipun stjórna að það má bara ekki vera nein snerting á milli stjórnmálanna og fyrirtækjanna. En við ætlum samt að binda ríkispeninga í milljarðatugum og hundruðum jafnvel í þessum fyrirtækjum. Þessari spurningu verður fjármálaráðherra að svara, hvernig réttlætingin með viðvarandi hætti er sú að þetta mikla umfang ríkisfyrirtækja sé enn raunin á sama tíma og menn ekki bara segja að hér þurfi að viðhafa armslengdarsjónarmið heldur ganga enn lengra og segja: Stjórnmálaflokkar (Forseti hringir.) mega ekki hafa fulltrúa í stjórnun þessara fyrirtækja til að fylgjast með því sem þar gengur á.