leiðarmerki og öryggi siglinga.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Markmið frumvarpsins er að tryggja öruggar og greiðar siglingar í kringum Ísland með notkun vita og annarra leiðarmerkja. Ráðuneytið vann frumvarpsdrögin í nánu samstarfi við Landhelgisgæslu Íslands, Samgöngustofu og Vegagerðina.
Virðulegi forseti. Síðan núgildandi lög um vitamál voru sett hefur þjóðfélagið breyst mikið. Sjósækinn iðnaður hefur aukist með tilheyrandi mannvirkjum í hafi og á hafi. Kallað hefur verið eftir því að öryggi siglinga sé tryggt samhliða þessum breytingum. Með frumvarpinu er ætlunin að einfalda rekstur leiðbeiningarkerfa siglinga á Íslandi og skýra skiptingu verkefna milli aðila. Þetta er gert til að mynda samhljóm við aðra málaflokka samgangna án þess að dregið sé úr kröfum um öryggi.
Stefnt er að því að tryggja að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sem ríkið hefur undirgengist. Ísland er aðili að Alþjóðasiglingamálastofnuninni, IMO, og hefur undirgengist alþjóðlegar skuldbindingar á sviði siglinga. Ísland er jafnframt aðili að Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum, IALA, sem var áður Alþjóðavitamálastofnunin. Meðal þeirra krafna sem Ísland hefur undirgengist er að merkja öruggar siglingaleiðir með ákveðnum hætti og færa þær inn á sjókort ásamt því að fylgja alþjóðlegum tilmælum og viðmiðum við uppsetningu leiðbeiningarkerfa fyrir sjófarendur.
Í frumvarpinu er kynnt nýtt ákvæði sem fjallar sérstaklega um áhættumat siglinga en kallað hefur verið eftir lagabreytingum til að tryggja lagastoð fyrir slíku áhættumati og skýra betur framkvæmd þess. Í ákvæðinu er einnig að finna heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerð með nánari ákvæðum um áhættumat siglinga. Með því verður tryggt að mannvirki sé ekki reist í eða á hafi nema áhættumat siglinga, og þær mildunaraðgerðir sem áhættumatið kveður á um, hafi farið fram. Alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á sviði siglingaöryggis sem leiða af aðild Íslands að Alþjóðasamningi um öryggi mannslífa á hafinu, eða SOLAS, Safety of Life at Sea, kveða á um skyldur ríkja til að tryggja öruggar siglingar. Áhættumat siglinga er viðurkennd aðferð til að uppfylla þær skyldur og styður við markmið samningsins.
Í frumvarpinu er ákvæðum er varða tilkynningar til sjófarenda og ákvæðum um farartálma í sjó breytt til samræmis við gildandi framkvæmd. Heimild stjórnvalda til að kveða á um skipulag umferðar- og leiðsögukerfa á sjó er tryggð ásamt heimild til að takmarka siglingaumferð á ákveðnum svæðum. Í frumvarpinu eru ákvæði um leiðarmerki útfærð þannig að þau taki ekki eingöngu til lands- og hafnarvita heldur einnig annarra leiðarmerkja. Þá er tryggt að öll leiðarmerki rati í vitaskrá, sjókort og önnur sjóferðagögn.
Í frumvarpinu er lögð til heimild til að krefja þann sem óskar breytinga á vitakerfi landsins um greiðslu kostnaðar við slíkar breytingar ásamt því að heimild Vegagerðarinnar til að grípa til nauðsynlegra úrbóta á leiðarmerkjum á kostnað hafnarstjórnar eða eiganda er skýrð.
Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði frumvarpsins og vísa að öðru leyti til frumvarpsins sjálfs og greinargerðar sem því fylgir. Það er mitt mat að samþykkt frumvarpsins muni stuðla að auknu öryggi siglinga hér við land.
Ég legg til að eftir 1. umræðu verði málinu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og til 2. umræðu.