Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er mér sönn ánægja að vekja athygli á orðum formanns Bændasamtakanna frá því fyrr í vikunni á búnaðarþingi þar sem hann fagnaði sérstaklega aðkomu þjóðarinnar að atkvæðagreiðslu um það hvort við eigum að halda áfram aðildarviðræðum að Evrópusambandinu. Formaðurinn lagði líka ríka áherslu á að landbúnaðurinn þyrfti að koma að samningsferlinu, ef af verður, vegna þess að mikið er í húfi fyrir þá mikilvægu atvinnugrein í landinu.
Sá sem hér stendur telur að landbúnaðurinn sé í gríðarlega sterkum færum við að ná góðum samningi við Evrópusambandið, ef af verður, því reynslan er þar ólygnust. Sænskur og finnskur landbúnaður hefur hagnast mjög af inngöngu í Evrópusambandið eins og dæmin sanna, ekki síst hvað nýliðun í faginu varðar en nýliðun í landbúnaði er erfið, svo ekki sé meira sagt, hér á Íslandi. Þá er líka frá því að segja að sænskur og finnskur landbúnaður hagnast sérstaklega á aðildinni vegna hnattlægrar stöðu landanna en stór hluti af sænskum og finnskum landbúnaði er fyrir norðan 62. breiddargráðu. Allur íslenskur landbúnaður er einmitt fyrir norðan þá umræddu gráðu þannig að óhætt er að segja að íslenskur landbúnaður sé í mjög góðum færum að ná samningi við Evrópusambandið.
Talandi um tölur, 32% af fjárlögum Evrópusambandsins fer einmitt til landbúnaðar og meira en helmingur fer til landbúnaðar og byggðafestu, byggðaþróunar í hverju landi. Ísland mun að öllum líkindum hagnast verulega á hnattrænni stöðu sinni þegar kemur að styrkjum Evrópusambandsins sem munu sérstaklega leggja áherslu á landbúnað við erfiðustu skilyrði álfunnar og leggja sérstaka rækt við líffræðilegan fjölbreytileika í þeim húsdýrum sem hér um ræðir í þessari ágætu atvinnugrein.