157. löggjafarþing — 91. fundur,  27. mars 2026.

Störf þingsins.

[10:49]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 var kynnt fyrir okkur í gær, bæði fyrir hv. fjárlaganefnd og síðan í fjölmiðlum. Hallalaus fjárlög á næsta ári eru kynnt þar sem afgangurinn er 1 milljarður af 1.685 milljarða kr. útgjöldum. Ég held að það sé rétt að það sé 0,00065% í afgang. Minnir mig svolítið á það þegar við vorum að ræða útgjaldaregluna eða stöðugleikaregluna í fjárlögunum í desember. Það eru miklar áhyggjur núna þegar sú staða er komin upp að verðbólgan hefur hækkað aftur og er komin í 5,4%, atvinnuleysi eykst og er komið í 7,1% og þátttaka á vinnumarkaði dregst saman. Þetta eru hlutir sem við vöruðum við í fjárlagaumræðunni þegar skattahækkanir voru yfir 30 milljarðar og útgjaldaaukning fyrir árið 2026, 143 milljarðar milli ára, þetta myndi ekki fara vel. Það líða þrír mánuðir frá því að fjárlagafrumvarp er samþykkt þangað til að ríkisstjórnin boðar útgjaldalækkanir og að það eigi að fara í einhvern flatan niðurskurð í ákveðnum hluta fjárlaganna þannig að það er bara að raungerast það sem varað var við fyrir stuttu síðan. Það er sérstök umræða líka þegar talað er um hallalaus fjárlög á næstu árum sem eru það í raun bara á pappír þar sem það er gert er ráð fyrir 1 milljarði í afgang á næsta ári og 7 milljörðum árið 2028. Þetta er svona afturhlaðin fjármálaáætlun varðandi afganginn. Við skulum vona að það rætist. En sá sem hér stendur hefur nú ekki mikla trú á að þetta gangi eftir (Forseti hringir.) miðað við hvernig hagstjórnin hefur verið stunduð hér síðustu 15, 16 mánuði í þessu landi.