157. löggjafarþing — 91. fundur,  27. mars 2026.

Störf þingsins.

[10:51]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Á síðasta aðalfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga kom hæstv. dómsmálaráðherra til að ræða fyrirhugaða brottfararstöð sem hugmyndin er að setja upp á Suðurnesjum. Á ráðherrann þakkir skilið fyrir það samráð og það var mál manna að þarna væri kominn upptaktur að því að vinna málið með heimamönnum. Ég er enn þá í þeirri trú að það sé sannarlega markmiðið. Það fer samt lítið fyrir því samráði sem stendur. Þess vegna vil ég brýna allsherjar- og menntamálanefnd að tryggja að það samráð fari fram, bæði við íbúa og kjörna fulltrúa.

Eins og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu er verið er að setja á laggirnar brottfararúrræði sem ég held að flestir þingmenn séu sammála um, og margir úti í samfélaginu, en einnig er farið vandlega yfir hugmyndir ráðuneytisins um mun viðameiri starfsemi á svæðinu. Það kom aftur á móti fram í máli manna á fundi Sambands sveitarfélaga að lítill áhugi væri fyrir því. Er það fyrst og fremst vegna þess að á Suðurnesjum lagðist þungi málaflokksins hlutfallslega mjög mikið á innviði, félagsþjónustu, sjúkraflutninga, löggæslu og svo má lengi telja. Þegar fjöldinn var sem mestur hér fyrir um tveimur árum síðan þá voru í úrræði Vinnumálastofnunar um 1.400 manns í sveitarfélaginu. Þeim hefur sem betur fer farið ört fækkandi og eru um 200 í dag. Við vitum að þetta er kvikur málaflokkur og það er mikilvægt að vel sé staðið að honum svo hægt sé að veita þá þjónustu í nærumhverfi sem mikilvægt er varðandi slík úrræði. Þess vegna held ég að það sé mikilvægt að öllu leyti að eiga samráð (Forseti hringir.) við íbúa og kjörna fulltrúa alveg frá upphafi máls til enda.