skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Forseti. Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar sem varða fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða. Í meginatriðum er lagt til að dregið verði úr þeim magntakmörkunum sem nú gilda um fjárfestingar þeirra. Ekki er lagt til að núverandi fyrirkomulag verði lagt af heldur að gerðar verði á því umbætur. Í frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar sem varða rekstur, innra eftirlit og innri endurskoðun lífeyrissjóða sem ætlað er að koma til móts við þá auknu áhættu sem gæti fylgt minni magntakmörkunum.
Forseti. Eftirfarandi eru helstu tillögur sem varða magntakmarkanir:
1. Fallið verði frá því að samanlagt vægi fjármálagerninga fyrirtækja og sjóða og fasteigna megi ekki fara umfram 60% af heildareignum lífeyrissjóða.
2. Mótaðilatakmörkun fjárfestinga í verðbréfasjóðum verði afnumin. ?
3. Rýmkuð verði heimild til fjárfestinga í verðbréfasjóðum sem eiga nánast eingöngu eignir sem taldar eru mjög öruggar.
4.?Heimildir til fjárfestinga í óskráðum fjármálagerningum verði rýmkaðar.
5. Fjárfestingar í heimildarskírteinum hlutabréfa teljist með hlutabréfafjárfestingum.
6. Heimilt verði?að fjárfesta í afleiðum í þeim tilgangi að stuðla að skilvirkri stýringu eignasafna og lægri viðskiptakostnaði.
7. Heimildir til fjárfestinga í sértryggðum skuldabréfum lánastofnana verði auknar.
8. Lífeyrissjóðum verði ekki skylt að grípa til úrbóta ef fjárfestingar fara fram úr leyfilegum mörkum vegna verðbreytinga á verðbréfum.
9. Lífeyrissjóðir hafi 12 mánuði frá móttöku fyrsta iðgjalds eftir stofnun sjóðs eða deildar til að uppfylla lögbundnar kröfur sem varða fjárfestingarheimildir þeirra.
10. Lífeyrissjóðum verði heimilað að veita verðbréfalán að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Samhliða eru lagðar til eftirfarandi breytingar sem varða rekstur, innra eftirlit og innri endurskoðun lífeyrissjóða:
1. Skerpt á kröfum um óhæði og sérþekkingu innri endurskoðunar.
2. Lífeyrissjóðum verði falið að hafa í þjónustu sinni starfsmann sem er hæfur til þess að annast ráðgjöf til stjórnar um fylgni við lög og stjórnvaldsfyrirmæli sem gilda um starfsemi þeirra.
3. Umgjörð um útvistun mikilvægra verkefna verði skýrari.
4. Kröfur um verðmat eigna verði útfærðar.?
5. Ákvæði um lausafjárstýringu verði bætt við.
Forseti. Í frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar á þeirri þrepaskiptu árlegu rýmkun sem nú gildir um heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum. Hún nær til ársins 2036 og samhliða lögfestingu hennar árið 2023 var ákveðið að ráðherra skyldi leggja mat á það, eigi síðar en árið 2027, hvort tilefni væri til að leggja til aðrar breytingar á hlutföllum þess lágmarks sem um það gildir. Ég hef gert ráð fyrir að sú greining muni fara fram sérstaklega og hefur hún þess vegna ekki verið hluti af undirbúningi þessa lagafrumvarps.
Forseti. Markmið breytinganna er að gera lífeyrissjóðum betur kleift að beita svonefndri skynsemisreglu við stýringu eigna sjóðsfélaga. Jafnframt að mögulegt verði að taka meira tillit til aðstæðna og samsetningar eigna hvers og eins lífeyrissjóðs. Með breytingunum eru taldar meiri líkur á að eignir sjóðanna geti staðið undir greiðslu lífeyris í framtíðinni. Ekki er talið að breytingarnar leiði til skyndilegra sveiflna í eignasöfnum lífeyrissjóða eða á fjármálamörkuðum.
Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.?