varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokki Flokks fólksins um að Jónína Björk Óskarsdóttir verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Hildur Sverrisdóttir verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðvesturkjördæmi, Grétar Mar Jónsson, og víkur þá 2. varamaður á lista, Þóra Gunnlaug Briem, af þingi og 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Tómas Þór Þórðarson, en 1. varamaður á lista hefur þegar tekið sæti.
Grétar Mar Jónsson og Tómas Þór Þórðarson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.