157. löggjafarþing — 92. fundur,  13. apr. 2026.

kostnaðarrammi í tillögum ríkisstjórnarinnar.

[15:16]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það er vissulega áhugavert að formaður Viðreisnar, hæstv. utanríkisráðherra, hafi ekki verið upplýstur um 15 milljarða útspil, árlegt 15 milljarða kostnaðarútspil Samfylkingarinnar. Þá liggur það fyrir hér með. Eins og hæstv. ráðherra sagði: Allir flokkar eru í sinni pólitík. Þetta eru áhugaverð skilaboð frá hinni samheldnu ríkisstjórn. En mig langar núna í seinni spurningu, í ljósi þess að ég reikna ekki með frekari svörum varðandi hið fyrra enda ekki þörf á miðað við fyrra svarið, að spyrja hæstv. ráðherra um það að það kom fram á fundi utanríkismálanefndar í morgun, án þess að hér sé vísað sérstaklega til þess sem þar var sagt, hver tímalínan væri í ESB-málinu, atkvæðagreiðslunum tveimur og breytingu stjórnarskrár. Mig langar til að biðja hæstv. ráðherra um að fara yfir það með okkur í þinginu hvernig óskatímalínan lítur út gagnvart því að klára málið á þessu kjörtímabili þannig að nýkosnu þingi bíði það verkefni, að afloknum næstu alþingiskosningum, að samþykkja breytingu á stjórnarskrá.