kostnaðarrammi í tillögum ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Varðandi fyrri hlutann vil ég bara undirstrika að við erum að sjálfsögðu öll í pólitík og ég vona að skilaboðin frá Miðflokknum séu ekki þau að við megum ekki vera, flokkarnir, í okkar pólitík. Þetta eru áherslur Samfylkingarinnar og þær byggja að hluta til m.a. á þeim skýrslum sem hafa verið lagðar fyrir ríkisstjórnina, svo einfalt er það. Við í Viðreisn héldum geggjað Viðreisnarvorþing núna á laugardaginn. Þar erum við líka með okkar áherslur. Þetta er bara hluti af pólitíkinni. Ég hefði haldið frekar að við hér inni, eins og ég sagði áðan, ættum að fagna því, hvort sem það eru stjórnarflokkar eða aðrir flokkar, stjórnarandstöðuflokkar, að við erum að setja þessi mál á dagskrá, leikskólamálin, að brúa bilið. Ríkisstjórnin ætlar að taka þátt í því með sveitarstjórnum landsins að fara í það verkefni hvernig við brúum þetta bil.
Varðandi stjórnarskrána, og ég hef bara níu sekúndur eftir, er eitt sem ég vil segja. Ég vil hvetja stjórnarandstöðuna til að vera með okkur í því að samhliða því að við förum í þjóðaratkvæðagreiðsluna förum við saman í það að skuldbinda okkur til að koma almennilegu auðlindaákvæði inn í stjórnarskrá, (Forseti hringir.) það gætum við gert saman, með tímabundnum fyrirvörum um nýtingu sameiginlegra auðlinda landsins. Komið saman í þá vegferð, þá er ég til. (Gripið fram í.)