157. löggjafarþing — 92. fundur,  13. apr. 2026.

breytingar og úrræði í leikskólamálum.

[15:29]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir fyrirspurnina. Ég verð náttúrlega að taka undir það sem hæstv. utanríkisráðherra kom með hér áðan. Við höfum auðvitað verið að ræða það hvernig við getum brúað bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til börnin okkar komast á leikskóla. En það hvernig Samfylkingin kýs að haga sinni kosningabaráttu núna í sveitarstjórnarkosningum er ekki inni á mínu borði og við í Flokki fólksins erum með allt aðrar áherslur í sambandi við leikskólamál. Við viljum gjarnan koma með heimagreiðslur til foreldra sem eru á bið eftir leikskólaplássi. Við viljum gjarnan að stór fyrirtæki og aðrir sem treysta sér til þess að koma með úrræði fyrir sína starfsmenn, að það verði greitt fyrir því. Við erum hreinlega ekki einn og sami flokkurinn. En við erum með eina og sömu skýru stefnuna: Við munum gera það sem gera þarf og þurfa þykir til þess að brúa þetta bil. Ég get náttúrlega ekki, hv. þingmaður, á neinum tímapunkti ákveðið það hvernig aðrir flokkar haga sinni kosningabaráttu. Við í Flokki fólksins höfum í rauninni alveg nóg með okkar og erum á fullu að fylgja henni eftir. En takk fyrir þetta, hv. þingmaður, um kostnað og hvaðeina annað sem er, þetta er í umræðunni. En nei, það er ekki gert ráð fyrir 15 milljörðum og ég veit ekkert hvaðan sú tala kemur. Ég veit bara það að hér eru 1.000 börn á bið í borginni. Ég veit bara það að það væri mjög einkennilegt að ætla að lögfesta það núna og ætla að koma því þannig fyrir að við ætluðum að finna þessum 1.000 börnum samastað einn, tveir og þrír. En kosningabarátta er svolítið annað, hv. þingmaður, og hún er til lengri tíma.