breytingar og úrræði í leikskólamálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra hreinskilið svar og það er ljóst að hæstv. barna- og menntamálaráðherra og utanríkisráðherra gefa lítið fyrir kosningaplön Samfylkingarinnar. Öllu raunhæfari var nálgun hæstv. barna- og menntamálaráðherra á þau viðfangsefni sem til staðar eru í leikskólamálum þessa dagana, enda er það stóra málið hér í Reykjavík þar sem Samfylkingin hefur jú ráðið ríkjum á síðustu áratugum. Það er þá ljóst að það er ekkert um þessar upphæðir sem búið er að lofa í þetta, af því að ég fann heldur ekkert um það í fjármálaáætlun sem við ræðum hér á morgun. En reyndar segir hæstv. forsætisráðherra að með nýrri löggjöf og sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga sem kemur til framkvæmda í skrefum á næstu fjórum árum þá verði þetta gert. Eitthvað hefur verið rætt um að það megi ekki plata. Ég skil ósköp vel að formaður Flokks fólksins og formaður Viðreisnar vilji ekki taka þátt í þessum kosningaloforðum Samfylkingarinnar. En það breytir kannski svolítið stöðunni að þetta var ekki oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi (Forseti hringir.) eða í Reykjavík sem fór með þessar línur heldur var það forsætisráðherra Íslands sem situr í ríkisstjórn með hæstv. ráðherra.(Forseti hringir.)
Þannig að ég spyr aftur: Var forsætisráðherra bara að plata eða er raunverulega verið að vinna (Forseti hringir.) að þessum lagabreytingum sem kynntar voru í umræddu útspili Samfylkingarinnar í ráðuneyti hæstv. ráðherra?