157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

tilhögun umræðu um fjármálaáætlun.

[13:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Í dag hefst fyrri umræða um fjármálaáætlun 2027–2031. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar sem stendur í dag og á morgun. Umræðan hefst með framsögu fjármála- og efnahagsráðherra og verður rýmri andsvararéttur við ræðu ráðherra, þ.e. tvær mínútur í fyrra og seinna sinn. Á eftir framsögu ráðherra munu talsmenn allra þingflokka taka til máls, einn frá hverjum þingflokki. Venjulegar ræðutímareglur gilda og andsvör verða leyfð við ræður talsmanna. Að lokinni framsögu ráðherra og ræðum talsmanna tekur við almenn umræða sem mun standa til kl. 20. Venjulegar ræðutímareglur gilda og andsvör verða leyfð. Klukkan 20 í kvöld og áfram á morgun munu fagráðherrar taka þátt í umræðunni. Rúm klukkustund er áætluð fyrir hvern ráðherra og málaflokka hans.