157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fylgigögn með fjármálaáætlun.

[13:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Sem viðbragð við ræðu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur get ég staðfest að slíkt samkomulag liggur fyrir. Það er óbreytt afstaða fjármálaráðuneytisins að það sé ekki krafa um það í lögum um opinber fjármál að þessi gögn fylgi. Ég held hins vegar að umræðan hafi farið af stað á röngum forsendum því að auðvitað er mjög mikilvægt að þingið búi yfir þeim upplýsingum sem það telur nauðsynlegar þegar umræða fer fram. Á grundvelli þess höfum við lagt fram tillögu um hvernig að þessu verði staðið núna að þessu sinni og síðan í framtíðinni þannig að umræða um fjármálaáætlun sé skilvirk og að þingið hafi þær upplýsingar sem það telur nauðsynlegar, óháð því hvað lögin segja til um.