157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:45]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég ætla að spyrja fyrst hvort hæstv. ráðherra ætli að taka þátt í umræðunni vegna þess að hér var hæstv. ráðherra að flytja mál í gær sem sneri að stórum hluta að nýju verðlagseftirliti Viðreisnar og hann ákvað að sleppa umræðunni. Það er lítill bragur á því og ég tala nú ekki um að þegar við erum hér að tala um jafn mikilvæg mál og fjármálaáætlun þá finnst mér sjálfsagt að ráðherra taki þátt í umræðunni.

Hæstv. ráðherra talaði hér um hluti sem ég held að við flest séum sammála um, en það sem ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra að er að nú er það svo að það er komin álitsgerð frá fjármálaráði. Ég hef aldrei séð annan eins áfellisdóm yfir nokkurri fjármálaáætlun líkt og kemur fram í álitsgerð fjármálaráðs sem er sá faglegi hópur sem á að rýna fjármálaáætlun. Þar eru fjölmargar athugasemdir. Það er sérstaklega talað um að það vanti mikið upp á varkárni og aðhald í þessari fjármálaáætlun. Síðan er farið mjög gaumgæfilega yfir það, og með mjög ákveðnum hætti, að það sé mikil mótsögn í því að boða aðhald en lögfesta síðan sjálfvirka útgjaldaaukningu sem gerir það að verkum að 31% af ríkisútgjöldum er undir, 15% af þeim eru föst sem þýðir að ríkisstjórnin mun ekki geta ráðið þeim útgjöldum og byggir þessa ákvörðun að mati fjármálaráðs á gögnum sem standast ekki. Í ofanálag er hreinlega farið fram á það að menn endurskoði þessa stöðugleikareglu vegna þess að hún stenst ekki, bæði vegna þess að hún er ekki gagnsæ, það er ekki hægt að fylgjast með henni frá öðrum aðilum en ríkisstjórninni (Forseti hringir.) sem er með einhver gögn og mælikvarða sem enginn veit hverjir eru. Stóra málið er þetta: Fjármálaráð hefur áhyggjur af því að hér sé verðbólguhvetjandi fjármálaáætlun. Ég spyr hæstv. ráðherra: Á að taka eitthvert tillit til álitsgerðar fjármálaráðs?