157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:50]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég geri ráð fyrir því að forseti gæti jafnræðis þegar kemur að því að líta á klukkuna en það vantar svolítið upp á það.

Hér er hæstv. ráðherra að nefna snöru í hengds manns húsi ef ég tala um skuldirnar, því að fjármálaráð fer sérstaklega yfir það að ekki sé gert ráð fyrir því að minnka skuldir, þvert á móti aukast skuldir. Það bendir sérstaklega á að það sé ekki varkárt eða skynsamlegt að lækka ekki skuldir en miða frekar við, eins og gert er ráð fyrir í þessari fjármálaáætlun, að skuldirnar lækki hlutfallslega að því gefnu að bjartsýnar áætlanir gangi eftir varðandi hagvöxt. Þessi svör hæstv. ráðherra standast enga skoðun því að það liggur alveg fyrir að ráðið gagnrýnir sérstaklega að stjórnvöld noti eigið mat á kostnaðarþróun ríkisútgjalda til að sannreyna útgjöldin. Sú aðferð sé hvorki skýr í lögum né gagnsæ í framkvæmd. Þar með verði erfitt fyrir Alþingi, almenning og aðra eftirlitsaðila að staðreyna hvort reglan sé í raun uppfyllt.

Gagnrýnin stoppar ekki þar, virðulegi forseti. Fjármálaráð segir einnig að ný vísitölutenging almannatrygginga hafi í reynd breytt forsendu stöðugleikareglunnar eftir á. Hámark útgjaldavaxtar hafi verið ákvarðað áður en þessi nýja skuldbinding var lögfest. Því telur ráðið að endurskoða þurfi útgjaldaþakið til lækkunar. Þetta er mikilvægt. Stjórnvöld settu sér nýtt regluverk en hafa síðan sjálf veikt forsendur þess.

Virðulegur forseti. Ég spyr aftur, og ég mun fara nánar yfir það í ræðu minni — ég sá ekki hæstv. ráðherra í umræðunni hér í gær. Ef hann kom hérna í lokin, gott og vel, enda gengur þetta út á það að við eigum skoðanaskipti um þessi mikilvægu mál. Ég spyr aftur því að allir geta lesið álitsgerð fjármálaráðs: Er það svo varðandi þessar athugasemdir fjármálaráðs, sem eru mjög alvarlegar, mjög skýrar, (Forseti hringir.) að hæstv. fjármálaráðherra ætli ekki að gera neitt með þær?