fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurninguna. Nú fór ég yfir það í svari mínu til hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur að fjármálaáætlun byggist á þeirri hagspá sem helst er að treysta og er hagspá Seðlabanka Íslands. Það er alveg rétt sem fram kemur í máli hv. þingmanns að óvissa er óvanalega mikil og að hún er að verulegu leyti ytri óvissa. Ég held að til að draga úr þeirri óvissu sé því miður ekki margt sem við getum gert annað en að besta leiðin til að tryggja að ríkið geti sinnt hlutverki sínu í að draga úr óvissu þegar hún kemur upp er að ríkið standi sterkt fjárhagslega; að ríkisskuldir séu hóflegar þannig að það sé hægt að bregðast við. Innleiðing stöðugleikareglu og fjármálaáætlun, bæði sú síðasta og þessi, sýna svo ekki verður um villst að ríkisstjórnin tekur mjög alvarlega einmitt þetta, að besta tryggingin er að við séum í stakk búin til að bregðast við að því gefnu að áföll ríði yfir.
Þessi óvissa sem við stöndum frammi fyrir er hins vegar mjög flókin. Hún er háð pólitískum ákvörðunum erlendra þjóðhöfðingja og þróun í fjarlægum heimshlutum. Það er alveg ljóst að almennt séð eru hækkanir á olíuverði ekki góðar fréttir fyrir heimshagkerfið og þar af leiðandi ekki góðar fréttir fyrir lítið og opið hagkerfi eins og Ísland. Það er hins vegar líka ljóst að íslenska hagkerfið er einhver stærsti eða umfangsmesti orkuframleiðandi miðað við stærð hagkerfis eða höfðatölu sem finna má í heiminum. Sú framleiðsla sem við stöndum í er orkufrek. Það á þess vegna eftir að koma í ljós að hve miklu leyti þetta mun hafa neikvæðar afleiðingar fyrir íslenska hagkerfið og hversu umfangsmiklar þær eru.