157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:08]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir andsvarið. Það sem ég er m.a. að velta fyrir mér í þessu er að nú hafa verið mjög hástemmdar yfirlýsingar um hallalaus fjárlög á næsta ári sem er að mínu mati frekar fugl í skógi en í hendi þar sem um er að ræða 1 milljarð af 1.700 milljarða kr. fjárlögum. Það er ekki há prósenta þannig að ég hef áhyggjur af því að það muni ekki nást.

Mig langar í síðara andsvarinu að fara aðeins í málaflokkana eða aðallega í einn málaflokk sem er mér kær og það eru samgöngumálin. Ef maður horfir á framlög til samgöngumála í þessari fjármálaáætlun þá fara þau í öfuga átt miðað við hvernig hæstv. ríkisstjórn hefur talað. Við munum eftir því sem vorum hér í umræðunni og þeir sem fylgdust með að við ræddum um hækkun á vörugjöldum fyrir jól, 7,5 milljarða sem áttu að fara í samgöngur úti á landi. Við ræddum um 3,3 milljarða í kílómetragjöldum sem áttu að fara í samgöngur úti á landi og svo ræddum við veiðigjöldin sem voru 7,5 eða 7,6 milljarðar, ef ég man rétt, og allt átti þetta að fara í samgöngur úti á landi, virðulegur forseti. Það var umræðan og það voru rökin, hvort við ætluðum að vera á móti þessum málum vegna þess að það vantaði svo sannarlega fjármagn í vegina okkar, sem ég er sammála. Því spyr ég hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hvar eru þessir rúmu 18 milljarðar? Því að ég sé þá hvergi í þessari áætlun.