157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurningarnar. Nú er það þannig að gert er ráð fyrir útgjöldum vegna þessa frumvarps í fjármálaáætluninni þannig að það er ekki eins og þessir hlutir komi á óvart.

Varðandi almennar athugasemdir fjármálaráðs þá legg ég í fyrsta lagi til að hv. þingmaður lesi eldri umsagnir vegna þess að fjármálaráð er þá alltaf að gefa falleinkunn ef þetta er falleinkunn. Það kom glögglega fram, og hefur komið fram í þeim gögnum sem hafa verið lögð fyrir þingið, að hefði þeirri reglu sem nú hefur verið lögfest um þróun bóta verið fylgt í gegnum tíðina væru þær lægri en þær eru í dag. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að fyrir því að þær hafi hækkað séu málefnalegar ástæður, það hafa einhver þing fortíðarinnar tekið ákvörðun um að hækkunin hafi verið umfram það sem þessi viðmið gera ráð fyrir. Vandamálið er það að sá vilji er ekki gegnsær á meðan þessi regla er til þess að gera gegnsæi. Þar til viðbótar er það auðvitað þannig með öll útgjöld ríkisins, þessi þar með talin, að þar á Alþingi síðasta orðið. Það hefur svo sannarlega komið í ljós í beitingu eldri reglna um uppfærslu bótagreiðslna að Alþingi hefur svo sannarlega haft skoðun. Það að reglan sé nú loks svo gegnsæ að það sé hægt að gagnrýna hana er, held ég, ekki út af fyrir sig annað en einhvers konar dómur á það sem gert hefur verið reglubundið í gegnum tíðina.