fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér er nokkur spurn hvort hv. þingmaður hlusti einhvern tímann eitthvað á það sem er sagt í þessum ræðustól. Eða er það bara þannig að hv. þingmaður komi upp og segi bara það sem honum dettur í hug og alveg ótengt því máli sem flutt er af ræðumanni? En bara svo að hv. þingmaður sé upplýstur um það þá hefði orðið afgangur árið 2025 ef ríkisstjórnin, sem hann studdi ekki, hefði ekki komið með fjögur fjáraukalög og í ofanálag, virðulegi forseti, þá voru nú smámál, það var Covid, WOW féll, það voru Reykjaneseldar. En allt í góðu með það.
Hvað var ég að gera í þessari ræðu? Hv. þingmaður, fylgstu nú með, hlustaðu nú, nú tala ég hægt. Ég var að lesa upp úr álitsgerð fjármálaráðs. Ég endurtek: Ég var að lesa upp úr álitsgerð fjármálaráðs.Ég fór ekkert í pólitík, ég las bara upp úr álitsgerð fjármálaráðs og það er mikill áfellisdómur. Hv. þingmaður er með álitsgerðina og hann getur bara sannreynt hvort ég las þetta beint upp eða hvort það hafi eitthvað misfarist.
Varðandi 20 milljarða af 1.700 milljörðum, einhverjir búvörusamningar, virðulegi forseti — ef hv. þingmaður, sem er formaður hv. fjárlaganefndar, myndi láta svo lítið að lesa álitsgerðina þá er þar farið nákvæmlega yfir það — þetta eru ekki mín orð, þetta er fjármálaráð — að þetta snýr að 31% af ríkisútgjöldunum. 15% af ríkisútgjöldunum eru beintengd vísitölutryggingunni. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður ætti að gera þetta tvennt: Lesa álitsgerðina og hlusta á ræður áður en hann fer í andsvör.