157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:41]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ágætisandsvar. Varðandi brot á lögunum þá kom það fram í fyrri álitsgerð fjármálaráðs. Þar er vísað til þess að samkvæmt lögunum á að koma fyrst fram með fjármálastefnu, fá umsagnir um hana, ræða hana og samþykkja hana. Þegar það er búið á að leggja fram fjármálaáætlun sem byggist á fjármálastefnunni. Það sem þessi ríkisstjórn gerði hins vegar var að hún kom með þetta nokkurn veginn á sama tíma. Á fimmtudegi, þingdegi, kom fjármálastefnan og á mánudegi kom fjármálaáætlun. Það náðist aldrei að ræða fjármálastefnuna og fáir komu með umsagnir því þeim fannst ekki taka því úr því að það var ekki farið eftir lögunum. Þetta var ábending sem kom fram í fyrri álitsgerð fjármálaráðs. Þess vegna nota ég það orðalag að það fyrsta sem þessi ríkisstjórn gerði þegar kom að þessum málum var að brjóta lög um opinber fjármál. Ég held að um það sé ekki deilt. (Gripið fram í: Jú.) Þá verða menn að deila á fjármálaráð því ég heyri einhver gól frá stjórnarliðum. En það liggur alveg fyrir að fjármálastefnan var ekki rædd og samþykkt og fjármálaáætlun síðan byggð á henni. Það var ekki gert en allir sem lesa lögin sjá að það á að klára fjármálastefnuna, greiða atkvæði um hana og þegar búið er að samþykkja fjármálastefnuna þá á að byggja fjármálaáætlun á því. Þetta er það fyrsta sem ríkisstjórn á að gera.

Varðandi stöðugleikaregluna þá koma líka fram varnaðarorð hjá fjármálaráði. Síðast komu menn með það að menn ætluðu bara að vera með 0,9% aukningu en hún fór upp í 2% og hvort þetta eru 8 eða 5 milljónir sem hún hangir á núna, hún er náttúrlega löngu sprungin sú fjármálaregla, en það er kannski ekki gott dæmi. Varðandi lögbrotið er ég bara að vísa til þess að fjármálaráð benti á þetta þegar fjármálaáætlun hin fyrri var lögð fram að menn fóru ekki eftir lögunum hvað þetta varðar og þetta er í lögunum af ástæðu.