157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:45]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir prýðisfyrirspurnir. Bara svo það sé sagt þá sagði ég í minni ræðu áðan að það fyrsta sem ríkisstjórnin gerði var að brjóta lög um opinber fjármál og var að vísa til þess sem ég held að við séum öll sammála um. Varðandi það sem á undan gekk þá sýnist mér nú að alla vega við gerð fjárlaganna, þ.e. í meðförum þingsins, þá hafi menn verið varkárari því annars hefði ekki þessi niðurstaða orðið 2025, tekjurnar voru 73 milljörðum meiri en menn ætluðu, gert var ráð fyrir 60 milljarða halla. Þetta voru auðvitað mjög erfiðar aðstæður og svolítið aðrar en eru núna. En ef þáverandi ríkisstjórn hefði ekki komið fram með þessi fjögur fjáraukalög þá hefði síðasta ár, þ.e. 2025, verið hallalaust og það er náttúrlega ótrúlegt afrek í rauninni að vera með 2026 með þessum halla. En það einhvern veginn að fría hæstv. ráðherra frá umræðum um þetta mál og að hafa skoðun á þessu, ég verð að viðurkenna að ég skildi það ekki alveg hjá hv. þingmanni. (Forseti hringir.)Ég held að slík túlkun hafi ekki farið hátt ef hún hefur nokkuð farið fram til þessa. (Forseti (): ) Það er fullkomlega eðlilegt að hæstv. ráðherra hafi skoðun á því hvort eigi að mæta álitsgerð fjármálaráðs.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörkin.)