157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:51]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni andsvarið og árétta að ég var alls ekki að gagnrýna neinn fyrir að lesa upp úr álitsgerð fjármálaráðs. Ég var bara að slá ákveðinn varnagla við því að leggja þær ábendingar út á einhvern dramatískan veg. Stóra myndin er þessi: Ríkisstjórnin er á réttri leið. Fjármálaáætlun heldur sig við markmiðið um hallalaus fjárlög á næsta ári. Það gerist ekki af sjálfu sér. Það er innbyggt í áætlunina heilmikið aðhald sem m.a. birtist í því að ekki er verið að fara upp í 2% þakið sem stöðugleikareglan leyfir; þessi áætlun er innan við það. Það verður bara fínt að fara yfir það með fjármálaráði, þessar ábendingar þess, og fjalla um það í kjölfarið í nefndaráliti fjárlaganefndar því að þetta er hluti af faglegri umgjörð þessarar áætlunar, til þess að hún njóti trausts (Forseti hringir.) og nýtist til þess sem hún á að nýtast.