fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta ágæta andsvar og þetta er bara eitt af því sem ég hlakka til að fara yfir með fjármálaráði. Það sem við erum að tala um á mannamáli er þegar fátækustu hóparnir í samfélaginu, öryrkjar eða aldraðir, dragast aftur úr miðað við kjör annarra og hvað eigi að gera þá. Við getum talað um það sem áhættu ríkissjóðs að koma til móts við fátækasta fólkið í samfélaginu þegar þessi kjaragliðnun verður en í grunninn erum við í raun að tala um það hvort það sé gott samfélag sem skilur fátækustu hópana eftir þegar kjaragliðnun verður. Ég held að þeir sem vilja jafnaðarsamfélag, þar sem öryrkjar og aldraðir eru ekki skildir eftir, styðji það að þessi kjaragliðnun sé ekki innbyggð í kerfin hjá okkur og þess vegna var þessi breyting gerð.